Myndarfólk
Heilsan í fyrirrúmi
Skemmtilegt að skoða
13.03.2006 22:16:47 / Þóra

123.....

Endilega kíkið á www.123.is/himnesk,,

var að blogga þar og er að velta því fyrir mér hvort ég eigi að færa mig þangað :S

endilega kommenta og hjálpa mér að ákveða mig :)

kisskisskiss


» 2 hafa sagt sína skoðun

09.03.2006 00:15:52 / Þóra

The day has come........

Árshátíðin er á morgun,, mikil vinna að baki og loksins er komið að þessu!!!

Byrjum hjá Gróu um 5 leytið og svo verður haldið á Broadway,, þar sem við munum tjútta  our ass´´s off ;)  mætingin í okkar bekk og B-bekknum er gífurleg,, úúúú er orðin SVO spennt :D

Jæja,, ætla í háttinn svo ég verði ekki dauð um miðnætti á morgun, þar sem við í nefndinni mætum á Broadway níu í fyrramálið :haha:

Nighty Nigthy


» 2 hafa sagt sína skoðun

28.02.2006 20:57:19 / Þóra

umbreytingastjórnun!!

......hummm,, þetta var nú dáldið misheppnuð máltíð hérna hjá okkur :S vorum að elda saltkjöt og baunir og það gekk ekki alveg eins og það átti að gera 8| en hvað um það.....

það er nú ekki mikið að frétta af þessum bæ, Elma Rún var hjá okkur í helgarheimsókn og það var rosa stuð að hafa hana hjá okkur :lol: þær frænkurnar voru voða góðar og léku sér frá morgni til kvölds :D annars var helgin bara róleg, ég að vinna föstudag og sunnudag og Einar að vinna laugardag og sunnudag :$

annars er búið að vera nóg að gera að læra, mörg verkefni sem þarf að skila og ég að reyna að vinna smá í hverju þeirra, svo er líka farið að styttast í árshátíðina bara rúm vika í herlegheitin :haha: oh hvað það verður gaman, svo er Gróa náttlega búin að skipuleggja fyrirárshátíðarpartý sem er snilld því það var svo gaman hjá henni síðast ;) annars er nóg að gera í nefndinni,, selja miða, skipuleggja borðhald á Broadway, æfing atriða og þar eftir götunni..... eintóm gleði og hamingja 8)

það gekk bara vel hjá Sif og ég sá árangur,, jibbý aðeins farin að sjá mun,, daginn sem ég kláraði hjá Sif byrjaði átak í Nings og ég auðvitað skráði mig,, geri allllt til að halda rútínunni :haha:

jæja dúllurnar mínar,, ætla að halda áfram að gera ritgerð um umbreytingastjórnun,, svaka stuð,, nighty nighty


» 1 hafa sagt sína skoðun

22.02.2006 20:45:43 / Þóra

klukkerí klukk

jájá þá er búið að klukka mann einu sinni enn,, ég ætlaði nú að hætta að taka þátt í þessu en fyrst Þóra Sigrún og Pála klukkuðu mig verð ég að sinna þessa :haha:

4 störf sem ég hef starfað við um ævina: Glóðin, Flugleiðir, Vallarvinir og Nings

4 myndir sem ég get horft á aftur og aftur: How to lose a guy in 10 days, Madagaskar, Two weeks notice og Wimbledone.

4 staðir sem ég hef búið á: Keflavík, Römö, Reykjavík og Njarðvík

4 sjónvarpsþættir sem ég fíla: Desperat housewifes, CSI, OC og American Idol

4 staðir sem ég hef farið í frí: Spánn, Krít, Litháen og Frakkland

4 heimasíður sem ég heimsæki daglega: KHI heimasíðan, mbl, visir og ýmsar bloggsíður

4 uppáhalds matartegundir: kjúklingur, núðlur, skyrdrykkur og borgari á American style.

4 bækur sem ég les oft: úff vildi að ég læsi meira af bókum, en núna eru það skólabækur, annars er ég hrifin af bókunum hans Arnaldar...

4 staðir sem ég myndi frekar vilja vera á núna: á heitri sólarströnd, á skíðum í ölpunum, Köben og Karabískahafið.

4 hlutir sem ég hlakka til að fá: prófskírteinið mitt, nýja íbúð, þvottavélina og þurrkarann minn og manninn minn heim ;)

4 sem ég ætla að klukka: ææ,, klukka þá fjóra sem vilja láta klukka sig ;)


» 0 hafa sagt sína skoðun

21.02.2006 15:32:55 / Þóra

lasarus

ji hvað það getur slegið út fyrir manni,, ég fór í skólann í morgun því við vorum með kynningu í vettvangstengda valinu ;) ég fór svo heim þegar við gellurnar vorum búnar með okkar kynningu því ég er með hita, hausverk, hálsbólgu og allan þann pakkann 8| ég skreið beinustu leið upp í rúm og undir sæng og steinsofnaði svona,, klukkan 13 rauk ég á lappir og hljóp fram, hugsandi hvar barnið mitt væri,, hún gæti ekki líka verið enn sofandi klukkan 13 að degi til :S ég rauk inní herbergið hennar og þá fattaði ég að við fórum á fætur í morgun og hún var í vernduðu umhverfi á leikskólanum hihihi..... þannig að ég skreið bara aftur upp í rúm og svaf til 14 :D ætla að reyna að sofa þetta úr mér :haha:

Á laugardagskvöldið var sko nóg að gerast hjá minni,, við fjölskyldan byrjuðum í mat hjá Diddu og Pétri,, humm það var svaka gott :lol: ég skildi svo feðginin eftir þar og rauk svo út og í næstu blokk og þar voru stelpurnar í bekknum búnar að koma sér vel fyrir hjá henni Þurý að horfa á júróvísíon,, svaka stuð eins og alltaf í bekkjarpartýjum ;)  síðan þegar júró var búinn brunaði ég niður í bæ í ningspartý,, ég staldraði stutt þar og var komin heim um hálf eitt orðin SVO þreytt og slöpp,, en þetta var ágætis kvöld :D


» 0 hafa sagt sína skoðun

13.02.2006 17:13:54 / Þóra

mánudagur til mæðu

Aldeilis komin tími á smá fréttir 8)

Alla síðustu viku var ég í vettvangsnámi á Klömbrum,, vorum þar ég, Elsa, Ragna, Fribba og Svava að starta þróunarverkefni um Hreyfingu barna :D verðum svo með annan fótinn þarna inni eitthvað fram á vor :) Það var rosalega fínt þarna og allir svo jákvæðir og frábærir ;)  Það er spennó að sjá hvernig þetta verður en það er rosa vinna á bakvið þetta og framundan :D

Það er sko nóg að gera í skólanum þessa dagana,, og ég verð að segja að ég er orðin nokkuð stressuð yfir öllum þessum verkefnum sem eru framundan,, verkefni í vali, verkefni í stjórnun og svo lokaverkefnið sem ég hef ekki getað gefið mér tíma í enn :S úff,, það verður ljúft þegar þessu er lokið 8|

Á laugardaginn fórum við Einar á Argentínu að borða og VÁ hvað það var gott :haha:  Áttum þarna yndislega rómantíska stund,, þetta var æðislegt í alla staði......  eftir Argentínu kíktum við aðeins í partý út á Seltjarnarnes :D

Þá er það seinasta vikan hjá Sifinni,, mæling í lok vikunnar og þá verður spennandi að sjá hvort eitthvað hafi gerst og hvort ég verð ánægð eða ekki með sjálfa mig :S hummm,,, en svo er bara að halda áfram að vera dugleg og vera komin í svaka form þegar ég fer til Króatíu í maí...

þangað til næst........


» 6 hafa sagt sína skoðun

01.02.2006 21:40:55 / Þóra

ú I´m gonna live forever.........

vá,, það er sko kraftur í minni :D ég er búin að taka alveg til á baðherberginu, þrífa skápinn þar inni og var meira að segja komin á fjórar að skrúbba flísarnar á gólfinu í sturtunni ;) bara dugnaður sko - er svo búin að taka til í allri íbúðinni, þurrka af og sona og þrífa hjá Nemo :D er svo núna að bíða eftir að snúllan sofni svo ég geti ryksugað og skúrað þá ætti þetta að vera komið í bili :$ bara fara í sturtu og bíða eftir að kroppurinn er búin að vinna ;) kannski maður komi honum á óvart hummm,, that´s for me to know and him to find out hihihihi

... fór á fund með rektor í dag ásamt fleirrum útskriftarnemum og það var bara nokkuð gott að heyra frá honum ástæður þess að búið sé að flytja útskriftina um tvær vikur og nú skilur maður þetta miklu betur og mætir galvaskur með stírurnar í augunum og en annars í sparidressinu í Laugardagshöllina og heldur daginn hátíðlegan :haha:

.... það er líka búið að fresta árshátíðinni um eina viku og verður hún á Broadway 9.mars nk.... jájá þar er allt á fullu að færa allt um eina viku og það mesta er nú að smella saman eða kemur í ljós von bráðar 8| þá hefur maður viku lengur til að koma sér í rétta gírinn og finna rétta dressið ;)

jæja,,nú er snúllan sofnuð og ég ætla að halda áfram að gera allt hreint og fínt í kringum mig,,,

see you later, aligator


» 2 hafa sagt sína skoðun

28.01.2006 21:59:26 / Þóra

á ómögulegu nótunum!!!

ég sit hérna upp í sófa og er búin að vera að fylgjast með evróvísion svona með öðru auga, og omg.... mér fannst ekki eitt lag vera skemmtilegt jú kannski var lagið sem Sjonni söng skárst ;) en hin lögin voru hvert öðru leiðinlegra og Geir Ólafs, ég fæ bara æluna upp í háls þegar hann opnar munninn,, maðurinn er ekkert smá hallærislegur :klikk:

víst ég er komin í ómögulega gírinn,, þá er bara svona allt í einu búið að færa útskriftardaginn frá 10 júní til 24 júní :S jújú, Kennó ætlar að spara einhverjar krónur á útskriftinni með að láta okkur vera upphitunaratriði fyrir Háskóla Íslands. Kannski er Kennó bara svona annars flokks skóli sem getur ekki séð nemendum sínum fyrir almennilegri útskrift ;) bara svona pæling........  en allavega þá er rektor Propper ekki vinsælasti maður skólans þessa dagana... enda margir útskriftanemar búnir að plana sumarið með útskriftina í huga,, kannski er þetta bara svona hint að þeir nenn´ekki að hafa útskrift og með að hafa hana klukkan 10 á laugardagsmorgni þá mæta kannski færri, maður þarf að fara MJÖG snemma á fætur og sérstaklega þeir sem búa utan höfuðborgarsvæðis,, svo maður geti nú litið sem best út 8|

.......en út í annað,, einkaþjálfunin gengur vel ;) er ekki alveg eins aum og í byrjun híhíhí og finnst þetta svaka gaman og fór í ræktina í dag og tók vel á því á meðan feðginin skemmtu sér í sundi :D

lífið er frábært þessa dagana og nóg að gera hjá öllum,, Halldóra er að flýta sér að verða fullorðin og farin að tala um að hún finni engan mann til að eignast börn með:!: hummm,,mamman ekki alveg sátt hahahaha,, vill hafa litlu stelpuna sína litla  8| en hún segir að ég eigi bara að eignast lítið barn,, því þá geti ég átt stórt barn og lítið barn,,, haha já hún er sko með svör við öllu þessi elska :haha:

hafið það gott elskurnar og þangað til næst

ciao

 


» 6 hafa sagt sína skoðun

21.01.2006 23:24:10 / Þóra

betra seint en aldrei

Janúar á enda komin og skólinn byrjaður, síðasta önninn :haha: ótrúlegt en satt.. það verður nóg að gera þessa önnina, lokaverkefnið, vettvangstengda valið og flr.

Ég er á fullu í einkaþjálfun þessa dagana hjá henni Sif, hún er að þræla mér út 3sinnum í viku og svo fer ég sjálf 3sinnum í viku :) ætla mér að vera ótrúlega dugleg og flott :P

Anna bostonia heldur aftur til Boston í næstu viku og tókum við því djamm í gær, hittumst heima hjá Guðrúnu og héldum svo um hálf 2 leytið í bæjinn,, byrjuðum á Ölstofunni og héldum svo á Óliver...við vorum þar þar til ljósin voru kveikt tuttugu mínútur í fjögur,, alltofsnemma að okkar mati  :S svo við Anna héldum í göngu um borgina í leit af meiri skemmtun, kíktum á Sólon, þar voru fáar sem engar hræður sama var á Pravda svo fljótlega héldum við heim á leið :lol: en ég skemmti mér ógó vel ´

Það má nú ekki gleyma aðalfréttinni,, 24 maí er ég á leið til Króatíu í útskriftarferð,, guð hvað ég hlakka til :haha: verður geðveikt hef séð myndir af staðnum og þetta er svaka flott og svo er svo ódýrt að lifa þarna,, ferð út að borða fyrir 1000 - 1500 kr.  ekki slæmt það...

-overandout-


» 6 hafa sagt sína skoðun

09.01.2006 20:38:36 / Þóra

Prinsessuafmæli

Prinsessan mín hún Halldóra Björg á afmæli í dag og er orðin 4 ára,, ótrúlegt en satt :)

 


» 8 hafa sagt sína skoðun

05.01.2006 21:49:53 / Þóra

Smá forvitni hehe

Þetta var á síðunni hennar Elsu minnar og ég sagðist ætla að setja þetta hérna inn og ég skora á ALLA sem skoða síðuna mína að svara :)

1. Hver ert þú?
2. Erum við vinir?
3. Hvenær hittumst við fyrst og hvernig?
4. Ertu hrifinn af mér?
5. Langar þig að kyssa mig?
6. Láttu mig hafa gælunafn og útskýrðu afhverju þú valdir það.
7. Lýstu mér í einu orði.
8. Hvernig leist þér á mig þegar þú sást mig fyrst?
9. Lýst þér ennþá þannig á mig?
10. Hvað minnir þig á mig?
11. Ef þú gætir gefið mér eitthvað hvað myndi það vera?
12. Hversu vel þekkiru mig?
13. Hvenær sástu mig síðast?
14. Hefur þig einhvern tíman langað til að segja mér eitthvað en ekki getað það?
15. Ætlaru að setja þetta á bloggið þitt svo ég geti skrifað um þig?

þetta verður spennó að sjá og ég skora aftur á ykkur að svara


» 3 hafa sagt sína skoðun

04.01.2006 21:18:40 / Þóra

Árið 2006 gengið í garð

:lol: Gleðilegt ár elsku vinir :lol:

Þá er nýtt ár gengið í garð :) Við erum búin að hafa það ótrúlega gott undanfarið.  Ég kláraði prófin 15 des og þá var nokkur mikil vinna framundan hjá mér og Helgunni minni varðandi bolasölu fyrir útskriftarferðina okkar góðu sem verður í vor :haha: Mér tókst ekki að gera allt sem ég ætlaði fyrir jólin og skipti það litlu þar sem þau komu og voru yndisleg :lol:  Við borðuðum hérna heima á aðfangadag, maturinn heppnaðist rosalega vel og eftirrétturinn hjá bóndanum alltaf SVO góður.  Prinsessan var spennt fyrir pökkunum og fengum við öll marga fallega pakka og þökkum við kærlega fyrir okkur :)

Á milli jóla og nýárs höfðum við það rosalega gott, Einar var í fríi fram í vikuna og snúllan í fríi á leikskólanum.  Á gamlárskvöld fórum við í matarboð til ömmu og afa hans Einars.  Einar var á vakt en fékk að koma í Kefló og borða með okkur, við kíktum svo aðeins til mömmu og pabba áður en Einar dreif sig aftur í bæjinn.  Við Halldóra fórum svo í Sandy á miðnætti og svo aftur í Kef en fljótlega héldum við þó heim og vorum komnar hingað milli hálf 2 og 2 um nóttina 8)

Það sem er næst á dagskrá er afmæli snúllu, en hún verður hvorki meira né minna en 4 ára núna 9 janúar, úff þetta er allt of fljótt að líða,, og verður haldin veisla á laugardaginn :) og án efa verður mikið stuð.

Nú er það bara nýtt ár - nú byrjun.  Lokaspretturinn í Kennó er handan við hornið og verður nóg að gera í verkefnavinnu þessa önnina, en ef þessi önn verður jafn fljót að líða og hinar á undan verð ég útskrifuð áður en ég veit af (eða vona það allavega híhíhí),, og þá er bara að ákveða hvert næsta skref í lífinu verður :)

Ætla að hætta að skrifa um ekkert og halda áfram að gera ekkert,,

Knús


» 1 hafa sagt sína skoðun

23.12.2005 21:16:35 / Þóra

Jólakveðja

Kæru vinir,, sendum ykkur okkar bestu óskir um gleðileg jól og farsælt nýtt ár :D vona að þið hafið það gott um jól og áramót

Jólaknús fjölskyldan í Holtinu


» 3 hafa sagt sína skoðun

20.12.2005 10:21:43 / Þóra

KITL

Hún Jórunn elskan var búin að kitla mig fyrir soldið löngu síðan en ég er fyrst núna að nenna að svara þessu ;)

7 hlutir sem ég ætla að gera áður en ég dey

fara í fallhlífastökk, gifta mig, eignast allavega eitt kríli í viðbót, mennta mig meira, vera dugleg í ræktinni, lifa skemmtilegu og hamingjusömu lífi, ferðast mikið

7 hlutir sem ég get

eldað jólamatinn, verið fljót að gera mig klára, elskað, verið rosalega tilfinningarík, vaknað hress, verið dugleg í ræktinni, verið óskaplega löt

7 hlutir sem ég get ekki

sungið eins vel og ég væri til, hlupið maraþon, borðað hákarl, keyrt mótorhjól, verið lengi án kroppanna minna, spilað á trommur, synt í sjónum á veturnar

7 hlutir sem heilla mig við hitt kynið

augu, kassinn (engan feld), bros, sjarminn, klæðnaður, hendurnar, rass

7 frægir sem heilla

Robbie Williams, Usher, Matthew MacConaughey, Orlando Bloom, Jude Law, Jónsi, Oprah (mögnuð kona sem ég væri til í að hitta)

7 hlutir sem ég sé núna

sjónvarpið, kommóðu, tölvan mín, dúkkukerru, ísskáp, lampa, gítar

7 manneskjur sem ég ætla að kitla

humm,, það hafa nú bara allir verið kitlaðir svo ég sendi bara öllu jólakveðju í stað kitls ;)


» 0 hafa sagt sína skoðun

20.12.2005 08:54:36 / Þóra

jólaskólafrí

 Hið langþráða jólaskólafrí hófst síðasta fimmtudag mér og öllum mínum til mikillar lukku :D næst síðasta önnin mín í kennó afstaðin og aðeins eitt próf eftir (vonandi) í þessum frábæra skóla :D

Ég er nú ekki búin að bralla mikið í fríinu, vinna smá, fara í afmæli bæði til Írisar og til Elmu Rúnar.  Kíkja í smárann og kringluna en lítið geta keypt af jólagjöfum :S en þarf að fara að klára þetta.............

jiminn eini hvað ég er eitthvað tóm í hausnum,, það liggur við að það hringli í honum eftir törnina um daginn :D

kveð þá bara í bili,, best að reyna að gera eitthvað sniðugt við timann,,

Hey já,, hún mútta mín á afmæli í dag,, ég óska henni innilega til hamingju með daginn,, kossar og knús  :)

jólastússkveðja


» 0 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2 3 ... 7